

SÓLARMUSTERIÐ
Hin leynda viska landsins - The sacred wisdom of the Land

Meet The Team

Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir
Gaia God/dessTemple
Dans, hugleiðslur, athöfn
Ég mun bjóða uppá leiddan dans þar sem við tengjumst sjálfum okkur í gegnum líkamann á stað og stund á djúpan hátt og dönsum það sem er. Það eru í boði 2 leiddar hugleiðslur þar sem við umbreytumst og sameinumst jörðinni annars vegar, og hins vegar djúp hreinsun þar sem við ferðumst inn í kjarna jarðarinnar og til baka. Gott er að gera báðar hugleiðslurnar og skoða mismunandi áhrif þeirra. Ég mun einnig gera heilunarathöfn þar sem við tengjumst jörðinni og alheimnum og styrkjum og heilum sambandið við sjálf okkur, jörðina og alheiminn. Ég hef unnið með innsæi mínu í gegnum myndlist í mörg ár sem fjallar um samband manns og náttúru og lífssýn mína sem er í stöðugri þróun.

Erna G Jóhannesdóttir
Indíánadans / Yoga
