Ábyrgð
- Sigríður Ásný Sólarljós
- Apr 6, 2015
- 2 min read

Gjörðir okkar, hvaða áhrif hafa þær á okkur, aðra, samfélagið, jörðina, alheiminn?
Er sannleikur, kærleikur, viriðng, hugrekki, heiðarleiki, auðmýkt og viska í því sem við erum að gera? Hvað með hugsanir okkar? Gerum við okkur grein fyrir því hvernig við sem ein mikilvægasta persónan í lífi okkar, höfum áhrif á allt og alla í kringum okkur?
Hver er ég sem einstaklingur? Hver er ég í samfélaginu? Sem Íslendingur? Sem manneskja á þessari jörð og í þessum alheimi?
Allar þessar spurningar lenda á sama punkti og það er „hver ber ábyrgðina í mínu lífi“. Fyrir mörgum árum þegar ég var um tvítugt las ég þessa setningu „stærsta vandamál nútíma samfélags væri ábyrgðarleysi“ og hófst þá ferli mitt að taka ábyrgð á mínu lífi, mínum tilfinningum og mínum gjörðum. Hvert og eitt okkar verður að gera það sama, að taka ábyrgð á eigin lífi og þar með lífinu í því samfélagi sem við búum í.
Allar hugsanir okkar, gjörðir okkar og orð hafa áhrif á allt líf í kringum okkur og á okkur sjálf. Séu hugsanir, orð eða gjörðir neikvæðar þá hefur það áhrif, séu hugsanir, orð eða gjörðir jákvæðar þá hefur það áhrif, lífið er eins og búmerang allt sem þú hugsar, segir og gerir kemur margfalt til baka til þín á einhvern hátt.
Hvað er það sem skapar gleði, ástríður og hamingju í lífi okkar? Er það að vera neikvæður í hugsun, orðum og gjörðum? Varla. Er það að vera jákvæður í hugsun, orðum og gjörðum? Jú miklu líklegra. Þess vegna er svo mikilvægt að þú lesandi góður takir ábyrgð á þér, bara þér, ekki benda á náungann, atvikið, yfirmanninn, ríkisstjórina eða einhvern sem lætur lífið vera svona „erfitt“, það er öllum öðrum um að kenna en mér, ég geri ekkert, reyni bara að lifa einföldu heiðarlegu lífi, á þeim launum sem þessir ákváðu að ég ætti að fá o.s.frv. Við bendum á / ásökum aðra í lífinu, samfélaginu á allt sem miður fer hjá okkur. Hver ber ábyrgð á þér? Ert það þú eða kaupmaðurinn á horninu? Ert það þú eða forsetinn? Nei það er Guð sem ber ábyrgð á mér? Hmmmm...... eða? Nei það ert ÞÚ og bara þú sem berð ábyrgð á þínu lífi og síðast en ekki síst þú berð ábyrgð á eigin tilfinningum og líðan. Það er enginn sem segir þér hvernig þér á að líða eða hvaða tilfinningar þú átt að hafa.
コメント