top of page

Heiðarleiki

  • Writer: Sigridur Sólarljós Ketilsdottir
    Sigridur Sólarljós Ketilsdottir
  • Jun 1, 2015
  • 2 min read

11270532_10205660568346670_1844424644609868149_o.jpg

Að vera heiðarlegur við sjálfan sig og aðra krefst hugrekkis og styrks. Með heiðarleika eins og með sannleika, bæði þessi atriði krefjast þess að maður vinni innávið og hlusti gaumgæfilega á það sem hjartað hefur að segja. Að vinna innávið þýðir að þú þarft að finna sannleikann um sjálfa/n þig, losa þig úr sjálfsblekkingunni um það hver og hvað þú sért, fyrirgefa og losa sig úr meðvirkninni sem stjórnar lífi þínu.

Sannleikur og heiðarleiki haldast hönd í hönd. Maður verður að þekkja sjálfa/n sig mjög vel, maður verður að þekkja styrkleika sína sem og veikleika. Við erum öll bæði með styrkleika og veikleika en okkur er gjarnt á að líta framhjá/ýta í burtu veikleikum okkar, viljum ekki sjá þá, en á sama tíma þá komum við ekki til með að þekkja styrk okkar að fullu. Enginn er sterkari enn veikasti hlekkurinn. Þess vegna er svo mikilvægt að hlúa að og vinna með veikleika sinn til að geta orðið sterkari í styrkleika sínum.

Að vera heiðarleg/ur við sjálfa/n sig er eitt, að vera heiðarleg/ur við aðra er annað, við þurfum að gera hvoru tveggja. Oft á tíðum þegar við stöndum með sjálfum okkur og segjum eða gerum hluti út frá heiðarleika, þá á sama tíma erum við að opna okkur fyrir gagnrýni annarra, já einnig fyrir jákvæðum upplifunum. Eitt sinn sagði kennari minn okkur sögu af því þegar hún vann í New York, hún er undir 1.60 cm á hæð og ljóshærð og eitt kvöldið var hún að vinna lengi fram eftir kvöldi og þurfti að taka neðanjarðarlestina heim til sín, hún er ein í lestarklefanum til að byrja með en á næsta stoppi kemur inn hópur karlmanna, leðurklæddar mótorhjólatýpur og skjóta að henni háðsglósum, hún er mjög hrædd en ákveður að vera heiðarleg og stendur upp og segir „ Strákar! Vitið þið, ég er svo hrædd“ og sló það öll verkfæri úr höndum þeirra og þeir tóku hana undir sinn verndarvæng, hún hafði hugrekki til að vera heiðarleg og fékk það margfalt til baka.

Ekki allir þola að þú sért heiðarleg/ur og er það oft á tíðum vegna þess að fólk á erfitt með að vera heiðarlegt sjálft.

Að vera heiðarleg/ur við sjálfan sig er ein sú besta gjöf sem þú gefur þér á lífsleiðinni.

Að vera heiðarleg/ur gagnvart tilfinningum sínum er ómetanlegt og þarfnast hugrekkis.


 
 
 

Commentaires


Featured Posts
Recent Posts
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
Follow Us
Search By Tags
  • Facebook Social Icon
  • LinkedIn Clean
  • Google+ Social Icon

© 2014 - 2016 by Sólarmusterið. Proudly created with Wix.com

bottom of page