top of page

Sannleikur

  • Sigríður Ásný Sólarljós Ketilsdóttir
  • Apr 25, 2015
  • 2 min read

mynd0399.jpg

Hvað er sannleikur, það sem getur verið sannleikur fyrir einum er kannski lygi fyrir öðrum. Sannleikurinn getur einnig falið sig vandlega og stundum er hann beint fyrir framan okkur og við sjáum hann ekki og stundum er sannleikurinn svo skír að við getum engan veginn falið hann eða reynt að komast framhjá honum, hann bara er.

Við lifum í heimi blekkingar, tálmyndar og það er okkar að reyna að sjá sannleikann sem liggur falinn í blekkinarhulunni. Tökum sem dæmi fjármálaheiminn, stjórnsýsluna, græðgina, allt er þetta tálmynd um að ef þú átt nóg af pening þá getur þú gert allt sem þig langar, en í raun verður þú þræll blekkingarinnar og sérð ekki sannleikann sem liggur að baki. Sannleikurinn samanstendur af tveim hlutum, sá sem er gefinn og sá sem við sættum okkur við. Það er svo auðvelt að láta okkur trúa því sem við viljum trúa, trúa á blekkinguna og margir hafa og gera það. Þess vegna er svo mikilvægt að bera ábyrgð á sjálfum sér, að vita hver maður er og að vera trúr sjálfum sér. Við verðum að vera heiðarleg og hafa hugrekki til að fara innávið og finna hver það er sem býr þar. Finna veikleika okkar og styrkleika.

Oft á tíðum viljum við trúa blekkingunni vegna þess að hún getur gefið okkur eitthvað, eða við vinnum/græðum á henni. Þegar upp er staðið þá er blekkingin samt alltaf til staðar og sannleikurinn kemur í ljós. Sjáum sem dæmi samfélagið okkar síðustu ár, fjármálakreppuna. Undanfari hennar, jú fólk trúði á blekkinguna um að þetta væri frábært og þær fáu raddir sem sáu sannleikann, þeim var ekki trúað, vegna þess að það var ekki eins „skemmtilegt“, nei þá var betra að taka þátt í blekkingunni og síðan þegar blekkingarhulunni var svipt í burtu og sannleikurinn kom í ljós þá var best að ásaka einhvern, útrásarvíking, bankastarfsmenn, stjórnmálamenn og segja „þeir blekktu okkur“ og helst ekki taka ábyrgð á því hver minn þáttur var í því að vera með í þessari blekkingu. Við verðum að vera heiðarleg við sjálfa okkur og taka ábyrgð á því sem við erum að gera, hugsa og segja.

Hvar finnum við sannleikann? Í hjartanu. Hvað hjarta þitt segir er stundum óþægilegt og veldur óþægindum, en það er alltaf sannleikur og að lifa lífi í sannleika er betra en líf þakið lygi.

Sannleikurinn skapar alltaf frið í hjarta.


 
 
 

Comments


Featured Posts
Recent Posts
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
Follow Us
Search By Tags
  • Facebook Social Icon
  • LinkedIn Clean
  • Google+ Social Icon

© 2014 - 2016 by Sólarmusterið. Proudly created with Wix.com

bottom of page