Virðing
- Sigridur Sólarljós Ketilsdottir
- Jun 16, 2015
- 2 min read

Að bera virðingu fyrir öðrum og fyrir sjálfum sér. Get ég borið virðingu fyrir því sem ég er að gera, hugsa eða segja. Er ég sátt/ur við mig og það sem ég hef gert. Nei ekki alltaf og þá þarf ég að fyrirgefa sjálfri/um mér fyrir það að hafa ekki borðið virðingu fyrir mér, því þegar öllu er á botni hvolft þá mun allt koma til baka til þín. Beri ég ekki virðingu fyrir því sem ég hugsa, segi eða geri, hvernig eiga aðrir að geta borið virðingu fyrir mér eða gjörðum mínum og til þess að geta það þarf maður að vera hundrað prósent heiðarlegur við sjálfa/n sig.
Get ég borið virðingu fyrir því sem ég er að segja, er að skrifa? Já. Get ég verið heiðarleg og sagt að ég geri allt sem ég skrifa og segi? Nei ekki algerlega, vinn að því á hverjum degi að bæta mig, að vera heiðarleg í því sem ég tek mér fyrir hendur, að reyna að sjá sannleikann og að sjá í gegnum blekkinguna sem ég oft á tíðum skapa sjálf og vinn að því að bera virðingu fyrir sjálfri mér.
Að bera virðingu fyrir sjálfum sér er að gera hluti og vera sátt/ur, að gera hluti sem eru til góðs fyrir heildina ekki bara sjálfan sig, að gera hluti af heiðarleika, sannleika, virðingu, kærleika, auðmýkt, hugrekki og visku.
Hversu mikla sjálfsvirðingu berð þú fyrir sjálfum/ri þér, þú gerir þér grein fyrir því að þú gerir ekkert betur en sjálfsvirðing þín leyfir þér. Þú getur ekki borið meiri virðingu fyrir því sem aðrir gera, heldur en þú berð fyrir sjálfri/um þér. Sjálfsvirðing er ekki að þóknast öðrum eða að þóknast sjálfum sér. Berð þú virðingu fyrir fólkinu í kringum þig, dýrum eða umhverfi þínu? Berð þú virðingu fyrir gjörðum þínum, hugsunum, tilfinningum og líkama þínum? Ef þú segir nei við einhverju af þessu fjórum þáttum sjálfs þíns, þá getur þú heldur ekki borið virðingu fyrir umhverfi þínu eða samfélagi eða fólkinu í kringum þig, því virðingin byrjar hið innra.
Viljir þú bera virðingu fyrir öðrum þá þarftu að bera virðingu fyrir þér.
Comentários